7.11.06

Tillaga að frumvarpi til Alþingis

Ég er með hugmynd. Við bönnum útlendinga á Íslandi. Við afnemum þá með öllu, leyfum þeim hvorki að koma til að vera, né koma til að fara aftur. Síðan útlendingar hófu að venja komur sínar til okkar biksvörtu stranda, hafa þeir fátt annað til afreka unnið en að nauðga konunum okkar og ræna okkur blönk, auk þess sem þeir hirða af okkur þau fáu störf sem eru í boði í þessu fámenna eyríki okkar.
Þegar okkar íslensku hetjur stökkva svo til og reyna að bjarga bjarteygum konum sínum, þar sem þær liggja umkringdar af barbörum með alvæpni sem gera sig reiðubúna að saurga þær og misnota, beita villimennirnir lúalegum brögðum og ráðast af fjölmenni á hetjur okkar og fella þær (en víkingarnir falla þó með sæmd).
Þeir iðka heiðin trúarbrögð og menga okkar kristna viðhorf, innræta saklausum, bláeygum og ljóshærðum íslenskum börnum ónefnanlega siði, enda hefur ekki farið vel fyrir þeim þjóðum sem hefur hreykt sér af samneyti við slíka menn.
Það er þó íslensk tunga og menning sem er í mestri hættu af þessum óþokkalýð. Útlendingar eiga það nefnilega til að tala bara sína eigin tungu, og láta um lönd og leið að þeir eru staddir í okkar heiðbláa fjallasal. Þeir opinbera viðbjóð sinn á íslensku lostæti, þess kostafæðis sem hin íslenska þjóð hefur í gegnum aldirnar matast á, og lifað þannig af hinar mestu vetrarhörkur. Sviðnir kindakjammar og súrar blóð- og lifrarpylsur, hrossabjúgu og SS pylsur, hafa svo getið af sér mikið afreksfólk sem hefur menntað sig af kostgæfni, og orðið þannig einhver best upplýsta og opnust þjóða í hinu siðmenntaða samfélagi samtímans.

Það er heldur engum sæmandi að kasta perlum fyrir svín, líkt og við gerum með því að flytja fiskinn okkar og hvalkjöt áleiðis til þessara siðleysingja. Við ættum því að einskorða okkur við sjálfbæran búskap og hætta þessu spreði.
Skólabækur og menningarefni hverskyns, sem Íslendingar skrifa og framleiða ætti að vera okkur nægjanlegt; það er lítil nauðsyn að sýna í sífellu viðurstyggilegt afþreyingarefni framleitt af þessum útlendingum.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú gleymdir að vísa til heimilda, vefsíðu tyrkjamálanefndarformanns fiskaflokksins.

hallurth sagði...

já. og setti ekki link á nýnasista heldur.

Nafnlaus sagði...

Orð í tíma töluð Hallur!
Það er alkunna að hætta stafar að landanum og hinu kynhreina íslenska blóði. Hinu sama blóði og rann um æðar Gunnar á Hlíðarenda og gat ódauðleg skáldverk og bókmenntir. Aðra lausn á "útlendingavandanum" er þó að finna. Við getum náttúrulega gert eins og við gerðum við amerísku hermennina eftir gerð verndarsamningsins: Læst útlendingana bakvið gaddavírsgirðingar og hleypt þeim einungis út í fáeina klukkutíma annanhvern miðvikudag (og auðvitað lokað börum, kaffihúsum og skemmtistöðum á meðan). Gömul ráð gefast best.

hallurth sagði...

Það verður þá að gjöra svo vel að hafa einhvern ábyrgan með þeim (les: hreinan aría) og hafa útlendingana í bandi. Alveg út í hött að láta þá bara ganga sjálfala um landið okkar.

Rollerblades at night