24.3.06

Heimahjúkrun

Það hlaut að koma að því. Ég er að leggjast í þessa helvízku flensu sem allir aðrir hafa vælt undan þessar liðnu vikur. Lýsi hérmeð eftir huggulegri og velmeinandi fröken til að annazt mig þessa helgi.
Reyndar ætla ég á tvær leiksýningar - aðra á laugardagskvöldið, hina sé ég sunnudagskvöldið. Og svo verð ég á fullu í bóklestri. Fyrir skólann. Vantar bara einhverja til að hugga mig og hjúkra. Breiða yfir mig sængina og færa mér heita drykki og svona.

Hvur býður sig fram í þetta?

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég skal!

hallurth sagði...

var ég ekki búinn að halda fyrirlestur um forvitnina! bannað...

en vertu samt velkomin, engu að síður, að hjúkra mér.

Nafnlaus sagði...

Þetta var örugglega mamma þín.

hallurth sagði...

nei, reyndar ekki. ég hélt að þetta hefðir verið þú!?

Nafnlaus sagði...

hvorugt!! hihihi...

Rollerblades at night